Foringi



Foringi þeir segja að
tíminn sé sá eldur sem við munum brenna í.
Ó foringi, ó foringi,
þú segir mér að ég muni aldrei eyðast í honum.
Ó foringi, ó foringi,
þú lofar mér eilífu lífifi, elskulegi foringi.

En foringi, ég brenn!

Foringi þeir segja að
tíminn sé sá eldur sem við munum brenna í.
Ó foringi, ó foringi,
þú munt bjarga mér með boðskap þínum elskulegum.
Með hoppi og handalyftingum,
ég muni verða hólpinn honum frá, elskulegi foringi.

En foringi, ég brenn!

Foringi þeir segja að
tíminn sé sá eldur sem við munum brenna í.
Ó foringi, ó foringi,
eilíft líf ef ég læt mína hýru til þín renna nú.
Í vellystingum praktuglega,
þú segir að við séum öll hólpin honum frá.

En foringi, ég brenn!