Húsavík



Ég kysst’ana með votum vörum.
Hún barðist um með hræðslu störum.
Ég herti aðeins betur að,
og eftir það – kom ekkert svar.

Heitt bað, hreina flík.
Það er dásamlegt að búa á Húsavík.

Tók’ana með mínum kaðli,
beitti engum helvítis kjaftavaðli.

Ég heyrð’ana umla, biðja um grið.
Batt’ana betur, vildi frið.
Vildi ljúka þessu af og komast heim
í heitt bað.

Heitt bað, hreina flík.
Það er dásamlegt að búa á Húsavík.

Tók’ana með mínum kaðli,
beitti engum helvítis kjaftavaðli.

Ég fékk’ða og lítið mar.
Hún var ánægð, ég var þar.
Það er í lagi að fara svona með sumar konur,
því ég er minnar móður sonur.