Góðir strákar.




Þegar börn yðar fá martraðir eftir að hafa hlustað á oss
skulið þér bara vita að vér erum saklausir.
Kondu út að leika vimmig.
Þegar þér viljið fá borgaðann fórnarkostnað yðar
skulið þér bara vita að vér erum saklausir.
Vér erum fórnarlömb aðstæðna sem aðrir sköpuðu oss og
vér því aðeins að gera það sem aðstæðurnar lögðu á oss.
Kondu út að leika vimmig.
Vér erum saklausir, alsaklausir.

Þegar barn yðar æðir út með morðtól í höndum
með einlægan ásetning um að drepa meiða limlesta
eftir að það hefur hlustað á oss eitt með sjálfu sér
þá skulið þér vita að það erum vér
sem erum fórnarlömb aðstæðnanna.
Því skulið þér hafa samúð með oss,
vér erum stjórnlaus peð aðstæðnanna
sem aðrir sköpuðu oss, vér erum í raun alsaklausir.
Kondu út að leika vimmig.
Þér megið vita að það erum vér sem erum fórnarlömbin.