Popparinn.




Ég er útbrunni popparinn
með staðnaðan ferilinn.
Ég trúi núna á Jesú Guð og Engilinn
og ferilinn í hærri hæðirnar.

Já já já
ég er sko útbrunni popparinn.

Ég er útbrunni popparinn
með staðnaðan ferilinn.
Ég treysti þeim er búa fyrir ofan himinn
að trúin lagi ferilinn
að predikarinn bendi hingað inn
að predikarinn plati ykkur inn.

Já já já ...

Ég er útbrunni popparinn
með staðnaðan ferilinn.
Í lífi og dauða er Guðinn minn
langbesti útgefandinn
því nú streyma seðlar í vasann minn
því frægðin elskar popparann í her guðsins míns.

Já já já .....